Reglugerð Orlofssjóðs Verkalýðs og sjómannafélags Bolungarvíkur

  1. Nafn sjóðsins.
    Heiti sjóðsins er Orlofssjóður Verkalýðs og sjómannafélags Bolungarvíkur. Skammstafað VSB. Heimili hans og varnarþing er  í Bolungarvík.
     
  2. Tilgangur sjóðsins.
    Tilgangur sjóðsins er að auðvelda félagsmönnum VSB að njóta orlofs, koma upp og reka orlofshús og orlofsíbúðir fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra og styrkja félagsmenn til orlofsdvalar.
     
  3. Tekjur sjóðsins.
    Tekjur sjóðsins eru:
    a] Samningsbundin gjöld atvinnurekenda til sjóðsins
    b] Vaxtatekjur
    c] Leigugjöld af orlofshúsum og orlofsíbúðum
    d] Annað ófyrirséð
     
  4. Stjórn sjóðsins og hlutverk hennar.
    Stjórn VSB er stjórn sjóðsins. Stjórnin skal gera tillögur um hvernig fé sjóðsins skuli varið.  Úthluta félagsmönnum orlofsdvöl í orlofshúsum og orlofsíbúðum félagsins og beita sér fyrir því að félagsmenn njóti orlofs síns t.d. með sameiginlegum ferðalögum, sem orlofssjóður kostaði eða tekur þátt í að greiða. Þá er stjórn sjóðsins heimilt að styrkja orlofsferðir á vegum eldri  félagsmanna eða Félags eldri borgara. Stjórn sjóðsins er heimilt að hafa samvinnu við önnur stéttarfélög  um úthlutun orlofshúsa og önnur þau mál er varða starfsemi orlofssjóða stéttarfélaganna.
     
  5. Greiðslur úr sjóðnum.
    Allar greiðslur úr sjóðnum aðrar en þær er varða daglegan rekstur hans, rekstrargjöld orlofshúsa/-íbúða, leigu orlofshúsa í eigu annarra og/eða til annarrar venjubundinnar starfsemi á vegum sjóðsins, skulu háðar samþykki félagsstjórnar. Á þetta einkum við um greiðslur sem ekki hafa áður verið hluti af hefðbundinni starfsemi sjóðsins, eða ef upphæðir teljast umtalsverðar miðað við þá starfsemi sem er á vegum hans á hverjum tíma. Stjórn félagsins skal ákveða hver verði hlutfallsleg þátttaka sjóðsins í rekstrarkostnaði félagsins.
     
  6. Endurskoðun.
    Endurskoðendur sjóðsins skulu vera þeir sömu og endurskoðendur félagsins, reikningar birtir með félagsreikningi og bornir upp á aðalfundi til samþykktar.
     
  7. Varsla á fjármunum sjóðsins.
    Stjórn félagsins skal annast vörslu sjóðsins á sem tryggilegastan máta er tryggi verðgildi og ávöxtun hans.
     
  8. Breytingar á reglugerð sjóðsins.
    ​Breytingar á reglugerð þessari má aðeins gera á aðalfundi félagsins, með samþykki 2/3 hluta atkvæða. Slíkrar tillögu skal getið í fundarboði.

Þannig samþykkt á aðalfundi félagsins þann 11. september 2005.