Lög félagsins

Lög Verkalýðs og sjómannafélags Bolungarvíkur.

I. Kafli. Nafn félagsins og hlutverk.

1. gr.

Félagið heitir Verkalýðs og Sjómannafélag Bolungarvíkur VSB.

Félagssvæði þess er Bolungarvík. Félagið er aðili að Alþýðusambandi Íslands,

Starfsgreinasambandi Íslands og Sjómannasambandi Íslands

Heimili þess og varnarþing er í Bolungarvík

2. gr.

Tilgangur félagsins er:

a) Að sameina allt verkafólk, og sjómenn sem starfa á félagssvæðinu.

b) Að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, svo sem með því að semja um kaup og kjör, bættan aðbúnað við vinnu og gæta þess að ekki sé gengið á rétt félagsmanna.

c) Að vinna að fræðslu- og menningarmálum.

3. gr.

Rétt til inngöngu í félagið hafa:

a) Allir verkamenn og sjómenn á félagssvæði félagsins.

b) Vinna, hafa unnið eða eru að hefja störf er 2. gr. a – liður greinir frá.

c) Eru fullra 16 ára að aldri.

d) Standa ekki í óbættum sökum við félagið eða önnur stéttarfélög innan ASÍ, sem viðkomandi hafa verið í.

4. gr.

Sá sem greiðir í félagið er sjálfkrafa komin í félagið og vinnur sér inn réttindi.

5. gr.

Heimilt er að taka í félagið sem aukafélaga unglinga innan 16 ára aldurs, þá sem vinna á samnings og félagssvæði félagsins og greiða til félagsins samkvæmt ákvæðum kjarasamninga en hafa ekki óskað eftir inngöngu sbr. 4. gr. og aðra sem stunda vinnu samkvæmt þeim samningum sem félagið hefur gert og starfa á starfssvæði félagsins um stundarsakir en eru félagar í öðru félagi.

Aukafélagar greiða fullt gjald meðan þeir eru á félagssvæðinu, hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum félagsins, en hvorki atkvæðisrétt né kjörgengi. Skyldur félagsins gagnvart aukafélögum eru hinar sömu og gagnvart aðalfélögum.

6. gr.

Úrsögn skal vera skrifleg. Hún skal afhent formanni félagsins eða senda póst á vsb@vsbol.is

Félagsmenn halda félagsréttindum meðan þeir gegna trúnaðarstörfum í verkalýðs-hreyfingunni.

Enginn getur sagt sig úr félaginu eftir að atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun hefur verið auglýst eða ákvörðun um vinnustöðvun hefur verið tekin af félaginu og þar til vinnustöðvuninni hefur verið formlega aflýst. Einnig er óheimilt að segja sig úr félaginu til þess að taka upp störf félagsmanna í öðru félagi innan A.S.Í. er lagt hafa niður vinnu vegna kjaradeilu.

II. Kafli. Réttindi og skyldur félagsmanna, réttindamissir, brottrekstur

7. gr.

Réttindi félagsmanna eru eftirfarandi:

a) Málfrelsi, tillögu- og atkvæðisréttur á félagsfundum, en auk þess njóta fullgildir félagsmenn kjörgengis til trúnaðarstarfa innan félagsins og þeirra sambanda sem félagið er aðili að. Atkvæðisréttur um kjarasamninga fer eftir nánari ákvörðun félagsfundar.

b) Réttur til styrkja úr sjóðum félagsins, að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru í reglugerðum þeirra.

c) Réttur til að vinna við þau störf sem kjarasamningar félagsins taka til og eftir þeim kjörum sem samningarnir ákveða hverju sinni.

d) Réttur til aðstoðar félagsins vegna vanefnda atvinnurekenda á samningum.

8. gr.

Skyldur félagsmanna eru:

a) Að hlýta lögum félagsins, fundarsköpum, fundarsamþykktum og samningum í öllum greinum og stuðla að því að aðrir geri það.

b) Að greiða félagsgjöld samkvæmt samþykktum félagsins.

c) Að tilkynna til félagsins brot á lögum og samþykktum þess.

9. gr

Félagsgjöld skulu ákveðin af aðalfundi og skulu þau innheimt sem ákveðinn hundraðshluti af launum. Félagsmaður sem skuldar lögboðin gjöld til félagsins fyrir 4 mánuði eða meira nýtur ekki fullra félagsréttinda, svo sem atkvæðisréttar, kjörgengis og málfrelsis. Félagsréttindi öðlast hann ekki á ný fyrr en skuldin er að fullu greidd.

Eins árs skuld varðar útstrikun af félagsskrá. Þetta á þó ekki við hafi launagreiðandi dregið félagsgjöld af launum félagsmanns en ekki skilað þeim til félagsins. Stjórn félagsins getur veitt þeim sem sjúkir eru og fallið hafa af launaskrá eða stunda nám eftirgjöf á félagsgjaldi.

10. gr.

Ef félagsmaður er sakaður um brot á lögum félagsins skal málið tekið fyrir á stjórnarfundi sem ákveður með einföldum meirihluta atkvæða hvort veita skuli áminningu eða víkja félagsmanni úr félaginu. Skjóta má þeim úrskurði til félagsfundar.

Hver sá maður er rækur úr félaginu í lengri eða skemmri tíma sem að áliti félagsfundar hefur unnið gegn hagsmunum félagsins, bakað því tjón eða gert því eitthvað til vansa, svo og hver sem ekki hlýðir lögum þess eftir gefna áminningu í félaginu.

Úrskurði félagsfundar um áminningu eða brottvísun félagsmanns má vísa til framkvæmdarstjórnar viðkomandi sérsambands og miðstjórnar A.S.Í. en úrskurður félagsfundar gildir þar til framkvæmdastjórn sérsambands eða miðstjórn A.S.Í. hefur úrskurðað annað. Hafi félagsmanni verið vikið úr félaginu á hann ekki afturkvæmt í félagið nema inntökubeiðni hans sé samþykkt á lögmætum félagsfundi.

III. Kafli. Stjórn og trúnaðarráð

11. gr.

Stjórn félagsins skipa 5 menn og 3 menn til vara: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, og 1 meðstjórnandi. Varastjórn skipa 3 menn. Kjörtímabil stjórnar er eitt ár, heimilt er þó að kjósa stjórn félagsins til tveggja ára í senn.

12. gr.

Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn allra félagsmála milli félagsfunda. Stjórnin boðar til félagsfunda, sbr. 19. grein. Hún ræður starfsmenn félagsins, ákveður laun þeirra og vinnuskilyrði. Stjórnin ber sameiginlega ábyrgð á eigum félagsins. Skylt er stjórn félagsins að stuðla að því að allt er varðar sögu félagsins sé sem best varðveitt. Láti félagsmaður af trúnaðarstörfum sem hann gegnir fyrir félagið er honum skylt að skila af sér öllum gögnum sem trúnaðarstarf hans varðar.

13. gr.

Formaður félagsins kveður til stjórnarfunda og stjórnar þeim. Formanni er skylt að halda stjórnarfund óski a.m.k. 2 stjórnarmenn eftir því og tilgreini fundarefni. Formaður undirritar gerðarbækur félagsins og gætir þess að allir stjórnarmenn geri skyldu sína. Hann hefur eftirlit með starfsemi félagsins og eftirlit með því að lögum þess og samþykktum sé fylgt í öllum greinum. Varaformaður gegnir öllum störfum formanns í forföllum hans og varastjórnarmenn taka sæti í stjórn í forföllum aðalmanna.

14. gr.

Ritari ber ábyrgð á því að gerðarbækur félagsins séu haldnar og færðar í þær allar fundargerðir og lagabreytingar.

Hann undirritar gerðarbækur félagsins ásamt formanni. Gerðarbækur skulu varðveittar á tryggum stað á skrifstofu félagsins. Heimilt er að hljóðrita fundi félagsins.

15. gr.

Gjaldkeri hefur á hendi eftirlit með fjárreiðum félagsins og bókfærslu eftir nánari ákvörðun stjórnarinnar.

16. gr.

Trúnaðarráð skal vera starfandi í félaginu. Í ráðinu eiga sæti stjórn félagsins og varastjórn og 10 fullgildir félagsmenn sem kosnir eru í ráðið eftir sömu reglum og til sama tíma og stjórn. Þá skulu kosnir 10 varamenn í trúnaðarráðið um leið og aðalmenn eru kosnir. Formaður félagsins skal vera formaður trúnaðarráðs og ritari félagsins ritari þess.

17. gr.

Samninganefnd skal vera starfandi í félaginu. Hlutverk hennar er að annast um kjarasamningsgerð fyrir hönd félagsins. Nefndin skal kjörin af aðalfundi, og í henni skulu eiga sæti 9 menn og 9 til vara. Formaður félagsins skal vera formaður samninganefndar nema annað sé ákveðið í lögum félagsins. Samninganefnd er heimilt að skipta með sér verkum eftir samningssviðum.

18. gr.

Kjörstjórn skal vera starfandi í félaginu. Hlutverk hennar er að annast um stjórn atkvæðagreiðslna um kjarasamninga, verkföll og allsherjaratkvæðagreiðslur skv. lögum félagsins. Kjörstjórnin skal kjörin af aðalfundi og í henni skulu eiga sæti tveir menn og tveir til vara. Við stjórnun atkvæðagreiðslna um kjarasamninga og verkföll skipar trúnaðarráð þriðja stjórnarmanninn og skal hann vera formaður kjörstjórnar. Við stjórnun allsherjaratkvæðagreiðslna um önnur atriði skv. lögum félagsins og/eða lögum ASÍ skipar miðstjórn ASÍ þriðja kjörstjórnarmanninn og skal hann vera formaður kjörstjórnar.

IV. Kafli. Fundir og stjórnarkjör

19. gr.

Félagsfundir skulu haldnir þegar félagsstjórn álítur þess þörf eða minnst 10% fullgildir félagsmenn óska þess við stjórn félagsins og tilgreina fundarefni. Fundir skulu boðaðir með minnst 7 sólarhringa fyrirvara með auglýsingu á vinnustöðvun og á annan viðurkenndan stað. Þó má í sambandi við vinnudeilur boða fund með skemmri fyrirvara. Fundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Fundum félagsins skal stjórnað eftir almennum fundarsköpum. Komi upp ágreiningsatriði um fundarsköp úrskurðar fundarstjóri hverju sinni með rökstuddum úrskurði. Óski einstakur félagsmaður eftir skriflegri atkvæðagreiðslu á félagsfundi er fundarstjóra skylt að verða við þeirri ósk.

20. gr.

Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir lok maí ár hvert. Aðalfundur skal boðaður með dagskrá með 7 sólarhringa fyrirvara og er hann lögmætur ef löglega er til hans boðað. Um boðun aðalfundar fer að öðru leyti með sama hætti og boðun félagsfundar.

Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:

. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.

. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu.

. Kosning stjórnar, varastjórnar og trúnaðarráðs. Eða ef beitt er allsherjaratkvæðagreiðslu sbr.lög ASÍ.

. Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna og eins til vara.

. Kosning til annarra stjórna og ráða sem lög og reglugerðir félagsins gera ráð fyrir.

. Lagabreytingar, ef fyrir liggja.

. Ákvörðun félagsgjalda.

. Önnur mál.

21. gr.

Kjósa skal stjórn og varastjórn á aðalfundi. Kjósa skal sérstaklega formann, varaformann, ritara og gjaldkera, en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum.

Viðhafa skal allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs og skal um tilhögun hennar fara eftir reglugerð ASÍ þar að lútandi.

V. Kafli. Fjármál

22. gr.

Aðalfundur skal ákveða upphæð og greiðslumáta félagsgjalda.

23. gr.

Af tekjum félags skal greiða öll útgjöld þess, skatt til viðkomandi sérsambanda og ASÍ og annan kostnað, er stafar af samþykktum félagsfunda eða stjórnar. Við meiri háttar ráðstafanir á eigum félagsins þarf samþykki félagsfundar.

24. gr.

Tveir félagslegir skoðunarmenn skulu yfirfara reikninga félagsins fyrir liðið reikningsár og gera athugasemdir sínar við þá. Skoðunarmenn eru kosnir á aðalfundi. Hlutverk þeirra er m.a. að hafa eftirlit með því að fjármunum félagsins sé varið til þeirra verkefna sem félagsfundur og/eða stjórn hafa ákveðið. Auk athugunar hinna félagskjörnu skoðunarmanna er stjórn félagsins skylt að láta löggiltan endurskoðanda endurskoða reikninga og fjárreiður félagsins í lok hvers reikningsárs. Reikningar félagsins skulu liggja frammi, til skoðunar fyrir félagsmenn, 7.dögum fyrir aðalfund.

25. gr.

Sjóðir í eigu eða vörslu félagsins skulu vera:

Félagssjóður, sjúkrasjóður, vinnudeilusjóður, orlofsheimilasjóður, fræðslusjóður svo og aðrir sjóðir sem stofnaðir kunna að vera. Allir sjóðir félagsins aðrir en félagssjóður skulu hafa sérstaka reglugerð sem samþykkja þarf á aðalfundi. Reglugerðum sjóða má aðeins breyta á aðalfundi. Reglugerð hvers sjóðs skal tilgreina hlutverk sjóðsins, hverjar tekjur hans skuli vera, hvernig verja skuli fé hans og hvernig honum skuli stjórnað.

Sjóðir félagsins skulu ávaxtaðir á tryggan hátt í ríkisskuldabréfum, í ríkistryggðum skuldabréfum í bönkum eða í sparisjóðum, í skuldabréfum tryggðum með veði í fasteign eða á annan hátt er stjórn félagsins og trúnaðarráð metur tryggan.

Tekjur félagsins skiptast milli sjóðanna samkvæmt ákvæðum í reglugerðum þeirra.

VI. Kafli. Lagabreytingar

26. gr.

Lögum þessum má breyta á aðalfundi félagsins enda hafi breytinganna verið getið í fundarboði. Einnig er heimilt að breyta lögum á félagsfundi, hafi lagabreytingarnar áður verið ræddar á félagsfundi og breytinganna getið í fundarboði.

Til þess að breytingin nái fram að ganga verður hún að vera samþykkt með 2/3 hlutum greiddra atkvæða fullgildra félagsmanna.

Breytingar á lögunum koma fyrst til framkvæmda þegar stjórn sambanda sem félagið er aðili að og miðstjórn ASÍ hefur samþykkt þær.

VII. Kafli. Félagsslit

27. gr.

Félaginu verður ekki slitið nema 3/4 allra félagsmanna samþykki það að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. Verði samþykkt að leggja félagið niður skal Alþýðusamband Íslands varðveita eignir þess þar til annað verkalýðsfélag er stofnað með sama tilgangi á félagssvæðinu. Fær það félag þá umráð eignanna að áskildu samþykki miðstjórnar Alþýðusambandsins.

Um sameiningu félaga skal fjallað á sama hátt og lagabreytingar.

Um úrsögn félagsins úr A.S.Í. eða aðildasamtökum þess fer samkvæmt lögum A.S.Í.

Lög félagsins þannig samþykktar á aðalfundi þann 3.júní 2020